home slider bg_karakter
home slider bg_gaia
home slider bg_hat
previous arrow
next arrow

Komið sæl og blessuð og velkomin í Saumaheiminn minn. Ég heiti Sigríður er yfirleitt kölluð Sigga og bý á fallega Kársnesinu í Kópavogi. Ég er saumakona, hef saumað síðan ég man eftir mér, daglega í yfir 10 ár en síðustu misserin hef ég sérhæft mig í endurnýtingu gamalla efna og elska að breyta gömlum flíkum og gera eitthvað nýtt og einstakt úr þeim.

Þetta finnst mér mjög mikilvægt í dag þar sem umhverfismeðvitund og “fast fashion” fara illa saman, mér gersamlega blöskrar offramleiðslan á lélegum fatnaði og textíl – að ég tali nú ekki um fatafjöllin í minna þróaðri löndum sem engin not eru fyrir. Ég trúi því að þegar við sinnum fötunum okkar, saumum, bætum og breytum, verðum við meðvitaðri um tímann og vinnuna sem fer í að setja saman flík – og minnkum í framhaldinu kaup á ódýrum klæðum úr lélegum efnum. Þannig hjálpum við Móður Jörð að heila sig af mengunnaráhrifum textíl- og fataframleiðslu.

Ég er alin upp við það viðhorf að fara vel með hlutina svo þeir endist lengur; að laga það sem hægt er og breyta svo hægt sé að nota lengur. Báðir foreldrar mínir voru handverksfólk, ég er alin upp innan um mikla handverksiðn og lærði snemma mikilvægi vandvirkni, þolinmæði, endurnýtingar og góðra handverka.

Ég er kennaramenntuð í grunninn og hvað varðar saumaskapinn þá er ég að mestu leyti sjálflærð en mamma er mín fyrirmynd í saumaskap, sem og flestu öðru. Hún vann í mörg ár í hlutastarfi sem saumakona og kenndi mér mikilvægi þess að vanda til verka…. “ef þú vandar þig við undirbúningsvinnunna, verður framhaldið auðveldara og flíkin ber það með sér að saumaskapurinn og frágangurinn er vandvirkur.”  

Það sem mér finnst skemmtilegt við fatabreytingar og endurnýtingu er að standa með tilbúna flík, hleypa hugmyndafluginu inn, opna hugann og skapa eitthvað nýtt úr gömlu. Sjálfri finnst mér gaman að ganga um í einstökum flíkum þannig að auðvitað finnst mér einstaklega skemmtilegt þegar fólk þorir að standa út úr hjörðinni í heimasaumuðum flíkum sem enginn annar á. Svo er það alveg einstök tilfinning að vera sjálfstæður í fatastíl, að geta búið til sínar eigin flíkur, það er engu líkt 🙂

Í dag sauma ég nánast allar mínar flíkur sjálf og breyti svo og endurhanna þegar flíkurnar henta mér ekki lengur. Svo hanna ég mín eigin snið og flíkur til sölu, allt úr efnaafgöngum og vintage gæðaefnum – merki þau með fiðrildi. Fiðrildi hafa verið mitt uppáhald í mörg ár, það er eitthvað við þessa endurnýjun sem heillar mig.

Fiðrildi eru líka táknræn fyrir mig, ég fékk verkefni í lífinu þar sem ég þurfi að endurskoða sjálfa mig og hefja nýtt líf sem önnur manneskja nánast – svo eru fiðrildin líka einstaklega passleg við endurnýtingu fata, þar sem gömul flík öðlast nýtt hlutverk – og nýtt líf <3

Velkomin í Saumaheim Siggu, það er hægt að hafa samband við mig á netfangið sigga@saumaheimursiggu.is og í síma 8467915.

Bestu kveðjur, Sigga