Grunnnámskeið í Fatabreytingum

Grunnnámskeið í Fatabreytingum og endurnýtingu gamalla gæðaefna  

Námskeiðið verður haldið í sal Kvenfélagasambands Íslands að Hallveigarstöðum við Túngötu

Vikuleg mánudagskvöld kl. 18:30 – 21:30 – 6 skipti 

Næsta námskeið hefst haustið 2023 – Skráning hér

Þátttakendur vinna með fyrirfram ákveðin grunnatriði í fatabreytingum. Þeir mæta með flík sem hæfir hverju atriði og geta mætt með mismunandi flíkur hvert sinn. Þátttakendur hefja vinnu hvers atriðis á stuttu hugmyndaflæði í minni hópum. Þátttakendur geta unnið áfram með flíkina heima ef þeir óska þess.

Þátttakendur taka með sér skæri, saumavél, saumavélanálar og flíkur til að breyta.

Litlir hópar, stuðningur og góður félagsskapur

Hvað er í boði?

  • félagsskapur “like-minded” fólks
  • dýpkun á möguleikum fatabreytinga
  • leiðsögn í saumaskap
  • sjálfstæði í fatabreytingum
  • sjálfbærni í fatastíl
  • hugmyndaflug
  • hugsa út fyrir boxið

Innifalið í námskeiðsgjaldi:

  • aðstaða, utanumhald og ráðgjöf
  • tvinnar, flíkur og efnabútar til að nota við breytingar
  • kennslumyndbönd fyrir sniðgerð
  • einföld, margnota snið fyrir fatabreytingar
  • tölur, skábönd, rennilásar og blúndur
  • félagsskapur, gleði og gaman
  • uppskeruhátíð i lok námskeiðs
  • lokaður hópur á Facebook

Skipulag námskeiðs:

Vika eitt:  Breytingar á sídd

  • Máltaka og skráning
  • Sniðgerð – axlarstykki
    • Hugmyndaflæði 
    • Unnið með sídd

Vika tvö:  Breytingar á vídd

  • Sniðgerð – keila
    • Hugmyndaflæði 
    • Unnið með vídd

Vika þrjú:  Breytingar á emum

  • Sniðgerð – ermi
    • Hugmyndaflæði 
    • Unnið með ermar

Vika fjögur:  Breytingar á hálsmáli 

  • Sniðgerð – kragi 
    • Hugmyndaflæði
    • Unnið með hálsmál

Vika fimm:  Blettir og göt – skreytingar

  • Sniðgerð – bolur
    • Hugmyndaflæði
    • Unnið með flíkur með blettum og/eða götum
    • Unnið með það sem þarf að klára

Vika sex:  Slútt

  • Unnið með það sem þarf að klára
    • Byrjað á nýjum fatabreytingum
    • Setið, spjallað og notið

Verð kr. 65.000 með möguleika á skiptingu:

25.000kr. staðfestingarfjald sem greiðist við skráningu

20.000kr í byrjun námskeiðs

20.000kr í lok námskeiðs

Næsta námskeið hefst í september 2023 – Skráning hér