Saumaheimur Siggu – Fara Beint á síðu
“Allt innifalið” tilboð stendur til 31. ágúst!
Saumaheimur Siggu er samfélag á netinu þar sem finna má nánast allt sem þarf til saumaskapar, fatabreytingar og endurnýtingar á fatnaði og textíl.
Í Saumaheimi Siggu leiði ég þig í ferðalag til sjálfbærni í fatastíl og fatanýtingu. Ég kenni þér aðferðir við að nýta fötin þín áfram, hvort sem er með almennu viðhaldi eða stórtækum breytingum – og hjálpa þér við að komast í rútínu við að setjast við saumavélina.
Saumaheimur Siggu býður uppá lengri tíma aðild að Saumasamfélagi með aðgangi að gagnagrunni og margskonar námskeiðum.
Þetta er markmiðið mitt með Saumasamfélagi á netinu, að við getum saumað með fólki úti um allan heim – Íslendingar hér og þar sem skiptast á hugmyndinum, sækja ráð, stuðning og hvatningu hvert til annars – hendum í hugmyndaflæði og sköpum nýtt saman.
Við skráningu í Saumaheim Siggu, býð ég upp á 30 mínútna einkasamtal varðandi óskir þínar og drauma í saumaskap og endurnýtingu.
Hægt er að kaupa aðild að Saumaheiminum; annars vegar í 12 mánuði með kosti á að greiða mánaðarlega eða með eingreiðslu – sú aðild kalla ég Gullnálina. Silfurnálin er annar kostur en þar er hægt að greiða eingreiðslu fyrir aðgang í 3 mánuði.
Þar fyrir utan er hægt að kaupa stök námskeið – Öll stök námskeið eru innifalin í aðildarverði!
Aðgangur að Saumaheimi Siggu veitir þér:
- Aðgang að íslensku kennsluefni
- Íslenska kennslu, leiðsögn byggða á reynslu
- Vikulega Zoom tíma þar sem við saumum, spjöllum og skiptumst á hugmyndum og ráðum
- Mánaðarleg örnámskeið úr völdum köflum Gagnagrunnsins
- Fjölbreytta og spennandi efnisflokka Gagnagrunnsins
- Innsýn í minn reynsluheim í Saumahorninu
- Stuðning, pepp og félagsskap á netinu
- Allskonar vinnusmiðjum
Námsefnið spannar m.a:
Saumavélar, máltöku, sniðgerð, saumaskap, fatabreytingar, viðgerðir, endurhönnun, hugmyndabanka og sértækari saumaskap svo sem rennilása, vasa, hálsmál svo eitthvað sé nefnt.
Nánari upplýsingar og skráning er hér https://saumaheimursiggu.com