Month: January 2015
-
Fjölbreytt vika
Vikan í litla saumahorninu er búin að vera aldeilis frábær og nóg að gera. Ég seldi þessa þrjá kjóla og fékk pöntun á einn grænan í viðbót. Ég elska þegar fólk vill vera í fötunum sem ég bý til 🙂 Svo er ég búin að vera þó nokkuð í ullinni. Undanfarin þrjú ár hef ég…
-
Eitt snið, margar flíkur
Ég er búin að vera að leika mér með sniðin sem ég hef búið til. Tískan í dag er svo einföld, bolir og kjólar frekar víðir, beint snið og stundum stroff. Ég er ein af þeim sem hef þennan beina vöxt, þ.e. það vantar á mig mittið – svona að mestu leyti 🙂 Ég lít því…
-
Að fela saumfarið
Síðasta vika var skrýtin vegna þess að overlock saumavélin bilaði og ég gat ekki saumað á hana…ekki nóg með það, tölvan mín bilaði líka þannig að ég komst ekki að blogga – alveg getur maður orðið háður því. Því miður lítur út fyrir að hún sé látin. Ég er sem sagt að stelast í tölvu dóttlunnar…
-
Að sauma gardínur
Jæja, er nú eitthvað að flækjast með uppsetninguna – alltaf að læra 🙂 Það er ekki meiningin að vera með sérstakt fróðleikshorn, heldur bara setja inn svona þegar verkefnin bjóða uppá lýsingu. Hver veit, kannski breyti ég þessu aftur, það kemur bara í ljós 🙂 Skvísuna mína vantaði gardínur fyrir gluggann hjá sér og við…
-
Litla, hvíta hænan
Þetta er hún, litla, gula…nei hvíta hænan mín. Nú gætu sumir spurt sig, hvað er eldhústímamælir að gera á saumastofu? Nú skal ég segja þér lesandi góður, þessi hæna er búin að vera mín stoð og stytta núna í u.þ.b. ár. Það er nefnilega þannig að kroppurinn minn og hugur eru ekki alltaf tengdir og hugurinn ekki…
-
Dundað í horninu
Ég ætlaði að vera hrikalega dugleg í jólafríinu og taka til og breyta helling í saumahorninu – mikil þörf á breytingu þar sem nýju/gömlu efnin sem ég keypti í október þurfa góðan stað 🙂 Ég skellti mér hins vegar í flensu og komst ekki einu sinni í tiltekt. Í gær fór ég svo niður og…