Karakter_Fylgja

Hver Fylgja er einstök, samsett úr áður elskuðum flíkum og vintage efnabútum. Karakter_Fylgjur passa með flestu og eru fyrir karaktera sem þora.

Karakter_Fylgjur eru tvenns konar; hattar og töskur í öllum mögulegum stærðum og gerðum. 

Hattarnir eru stærð sem passar á höfuðummál 55-57/8cm en hægt er að senda mér skilaboð og óska eftir annarri stærð.

Verð á Fylgjum eru alls konar, allt eftir samsetningu efna og sniði. Verð er við hverja Fylgju, sem og hvernig best er að sinna henni.

Saumahornið hefur ekki fasta opnunartíma en það er velkomið að hafa samband ef þú vilt koma, skoða og máta.
Ég er yfirleitt við mánudaga, miðvikudaga og laugardaga, eftir hádegi.
Best er að senda mér skilaboð á Messenger eða WhatsApp – eða senda mér línu á sigga@saumaheimursiggu.is