Fylgja_Taska

Töskurnar eru alls konar, unnar úr áður elskuðum flíkum og öðum textíl. Stærðirnar ráðast yfirleitt af efniviðnum og lögunin oft líka. 

Það bætist við vöruúrvalið eftir minni afkastagetu, um að gera að fylgjast með þegar bætist nýtt inn. Ef þú óskar eftir sérstakri tösku, getur prófað að senda mér línu á sigga@saumaheimursiggu.is og kannski get ég fundið útúr einhverju.

Það koma aldrei tvær eins, ég elska að blanda saman alls konar þannig að þú ættir að finna eitthvað við þitt hæfi – ef þú þorir!

fylgja

Taska #1 

Mér þykir þessi taska oggu skemmtileg, gallabuxurnar voru í poka sem ég keypti frá Rauða Krossinum, innvolsið er efni sem fylgdi í poka frá dánarbúi og grafíkefnið er áklæðisbútur sem ég fékk á markaði í Derby fyrir nokkru.  

Þessi bjútí kostar kr. 12.500

Mundu númerið fyrir greiðslugáttina

fylgja
fylgja_taska
fylgja_taska
Fylgja_taska

Ég var oggu lengi að velta þessari tösku fyrir mér. Freyja Ósk dóttir okkar var búin að benda á að það gæti verið sniðugt að gera litla tösku og þar sem ég get verið ansi praktísk þá vildi ég hafa hólf fyrir alls konar. Mér leiðist td. að hafa símann minn og húslyklana í sama hólfinu. Eftir nokkrar spöggleringar þá landaði ég þessari og mér finnst hún fullkomin.

Þessi taska hefur allt; rennilás, fóður og 4 vasa, 3 opnir sem allir rýma hefðbundinn síma og einn renndan fyrir lyklana.  Ólin er stillanleg, ég notaði hneppinguna á buxunum til að bæta við stillingum og svo þykir hún passleg að stærð fyrir allt smotterí sem þú þarft.