Karakter_ Yngvi

 

Hver yfirhöfn er einstök og kemur einungis í einu eintaki. Yngvar eru saumaðir úr áður elskuðum textíl, þar sem ýmsum efnum er blandað saman.  Yngvarnir endast vel, þeir eru tímalausir í útliti og fyrir öll kyn.

Það er gaman að segja frá því að mestu gæðaefnin í Yngvunum mínum, koma frá vefnaðarversluninni Horninu.

Hornið var búðin sem ég fór í með mömmu þegar ég var lítil, Verslunin var á Kársnesbraut, í bílskúr, áföstum íbúðarhúsi og þar var Hulda við stjórn.

Verslunin lokaði í kringum 1990 vegna veikinda Huldu, hún lést 1994 og bílskúrnum læst með efnalagernum óhreyfðum.

Þegar við fjölskyldan fluttum í draumahúsið árið 2014, kom í ljós að það var við hliðina á gömlu versluninni – og ástvinir Huldu voru að selja gamla, gamla lagerinn frá Horninu.

Ég auðvitað stökk yfir grjóthleðsluna milli lóðanna og keypti nánast öll bestu og fallegustu efnin.

Ég elska að blanda saman efnum og í hverjum Karakter eru efni héðan og þaðan; ull frá englandi, prjón frá Akureyri, silki frá Kína og þar fram efnir götunum. Efnin eiga það sameiginlegt að vera hlaðin gæðum og því ber að meðhöndla sinn Karakter með hliðsjón af því.

Ég mæli með viðrun og ef þörf krefur, að leggja í bleyti í kalt/volgt vatn.

Yngvarnir eru allir í yfirstærð og henta öllum sem þora.

Yngvarnir koma í nokkrum sniðum og það bætast ný snið í hópinn af og til. Þú ættir því að geta fundið Karakter sem hentar þér.

Hver Yngvi kostar 38.000kr

Saumahornið hefur ekki fasta opnunartíma en það er velkomið að hafa samband ef þú vilt koma, skoða og máta.
Ég er yfirleitt við þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga, eftir hádegi.
Best er að senda mér skilaboð á Messenger eða WhatsApp – eða senda mér línu á sigga@saumaheimursiggu.is

Yngvi_1

Yngvi_1

 

Yngvi_1 er bjartur og litaglaður, settur saman úr prjónaefni, þrenns konar ullarefnum, buxna-eða pilsefni og gardínuefni – eitt þeirra er afgangur af efni sem sett var á svefnsófann sem ég svaf á. Þú kannski kannast við efnið – efnin eru öll yfir 20 ára gömul 😉

Mundu númerið fyrir pöntunina í greiðslugáttinni.

Yngvi_2

karakter1

Yngvi_2 er settur saman úr hálfsaumuðu skotapilsi frá mömmu vinkonu minnar, silki frá Kína og yndislegum ullarblönduðum efnum frá vefnaðarversluninni Hornið. 

– efnin eru öll yfir 20 ára gömul 😉

Mundu númerið fyrir pöntunina í greiðslugáttinni.

Yngvi_2

Yngvi_3

Yngvi_3

Yngvi_3 er settur saman úr, mismunandi efnum frá Horninu hennar Huldu; ullarefni, prjónaefni og gardínuefni. Að auki er Yngvi_3 með vasa úr flaueli og bakstykki úr gardínuefni – afgangur frá stofugardínunum hennar tengdamömmu.

– efnin eru öll yfir 20 ára gömul 😉

Mundu númerið fyrir pöntunina í greiðslugáttinni.

karakter3

Yngvi_4

Yngvi_4

 

Yngvi_4 er allur úr efnum frá Huldu í Horninu, nema gyllti kanturinn – hann fylgdi með í kassa frá mömmu vinkonu minnar. Efnin eru ullarblöndur, gardínuefni og vasarnir úr bómullarprjónaefni.

– efnin eru öll yfir 20 ára gömul 😉

Mundu númerið fyrir pöntunina í greiðslugáttinni.

Yngvi_4