Brotni potturinn

Mér finnst þessi saga svo dásamleg, ég tengi vel við hana og hún fær mig til að skoða allt það góða sem ég hef. Þegar kroppurinn minn stoppaði mig af í íþróttunum, tvíburarnir fæddust og brjósklosin virtust aldrei ætla að að gróa, var ég ansi upptekin af því hvað ég var “gölluð”. Ég gat ekki þetta og ég gat ekki hitt…

Það sem ég lærði svo (sem betur fer fljótlega) var að börnin mín græddu svakalega á því að hafa mömmu sína heima, mömmu sem hafði tíma til að hlusta og spjalla hvenær sem þeim hentaði. Þeim leið vel uppi í sófa, við eldhúsborðið eða bara þar sem ég þurfti að vera til að minnka verkina. Ég er stolt mamma og þau græddu ekki bara á þessu heldur ég og öll fjölskyldan líka, heimilið var opið öllum þeim sem vildu spjalla.

Það er svo mikilvægt að sjá jákvæðu hlutina þegar okkur finnst við berjast móti straumi – ég trúi því að það er rými fyrir lærdóm í öllu og það er alltaf einhver tilgangur með því sem kemur upp í hendurnar á okkur. 

Þetta er sagan 🙂

Gömul kínversk kona átti tvo stóra leirpotta sem hún sótti vatn í og hengdi á sinn endann hvorn á súlu sem hún bar yfir axlirnar. Á öðrum leirpottinum var stór sprunga, en hinn var alheill. Eftir hina löngu göngu heim frá vatnsbólinu, var sprungni potturinn aðeins hálffullur af vatni, en hinn var áfallt fullur. 

Á hverjum degi í 2 ár kom konan heim með aðeins einn og hálfan pott af vatni. 

Auðvitað var heili potturinn alsæll með sína frammistöðu en hinn skammaðist sín fyrir að geta aðeins skilað ætlunarverki sínu að hálfu. Þegar hann hafði þjáðst yfir þessu í tvö ár, ákvað hann að ræða þetta við konuna. 

„Ég skammast mín vegna þess að það er sprunga á mér sem veldur því að vatnið lekur úr mér alla leiðina heim.“ 

Gamla konan brosti og spurði svo: „Hefurðu tekið eftir öllum blómunum sem eru þín megin á veginum en ekki hinum megin? Það stafar af því að ég hef alltaf vitað af galla þínum og þess vegna setti ég niður blómafræ þín megin við veginn og á hverjum degi vökvar þú þau á leiðinni heim. Í tvö ár hef ég getað tínt þessi blóm og skreytt heimili mitt með þeim. Ef þú værir ekki eins og þú ert, væri ekki hægt að fegra heimilið eins og gert er nú.“ 

Hvert okkar hefur sinn galla og ófullkomleika en það eru sprungurnar og gallarnir sem gera okkur einstök og gera líf okkar svona áhugavert og skemmtilegt. 

Höf. ókunnur 

Ég læt fylgja hér link inn á námskeiðssíðuna mína, þar sem þið getið lesið um námskeiðin mín og glænýtt netnámskeið – https://saumahornsiggu.is/namskeid/


Allt það besta til þín og þinna – takk fyrir að lesa. Ef þér líkaði máttu gjarnan deila þessari færslu með þeim sem gætu haft gott og gaman af.

Sigga

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Áhugaverðar greinar